

Sjúkraþjálfari
Laus er til umsóknar staða sjúkraþjálfara á meðferðarsviði 1 á Reykjalundi endurhæfingu ehf. Á meðferðarsviði 1 er veitt meðferð í gigtarteymi, verkjateymi og geðheilsuteymi.
Á Reykjalundi starfa átta þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.
Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk sjúkraþjálfara, iðjuþjálfar, sálfræðingar, næringarfræðingar, félagsráðgjafar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.
Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
- Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi FS og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk gildandi stofnanasamnings FS og Reykjalundar.
Upplýsingar um starfið veita Björg Hákonardóttir sviðsstjóri þjálfunar, [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]
Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
Íslenska

