Hugvísindasvið
Hugvísindasvið
Hugvísindasvið

Verkefnisstjóri á skrifstofu Hugvísindasviðs

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra í móttöku á skrifstofu Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Á skrifstofunni starfa 14 manns sem sinna fjölbreyttri stoðþjónustu við nemendur og starfsfólk sviðsins. Skrifstofan er miðstöð þjónustu og upplýsingagjafar fyrir Hugvísindasvið og lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við nemendur
  • Þjónusta við starfsfólk Hugvísindasviðs
  • Skjalavarsla
  • Svörun fyrirspurna og almenn upplýsingagjöf
  • Innkaup og umsjón með rekstrarvörum
  • Umsýsla prófa og einkunna
  • Aðstoð við deildarstjóra Hugvísindasviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
  • Þekking á starfsumhverfi háskóla er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Góð þekking á Microsoft Office 365 og áhugi á að tileinka sér nýja tækniþekkingu
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í störfum, ásamt sveigjanleika
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar