Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar

Hjúkrunarfræðingur óskast í okkar góða hóp á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar. Dagdeild gigtarsjúkdóma sinnir innrennsli á sérhæfðum lyfjum eins og líftæknilyfjum og mótefnum fyrir gigtar-, lungna-, tauga-, ónæmis- og nýrnasjúklinga. Á deildinni starfar þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðinga, lækna, ritara og sjúkraliða við fjölbreytt og krefjandi verkefni og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda.

Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi. Í boði er fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf í sérhæfðu starfsumhverfi. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að kynna sér þær framfarir sem líftæknilyf hafa haft á þróun í læknisfræði og breytt lífsgæðum fjölda sjúklinga til hins betra.

Deildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5. Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsfólks með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu.

Við leggjum metnað í að veita góða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
Íslenskukunnátta áskilin
Helstu verkefni og ábyrgð
Lyfjagjafir og eftirlit
Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan deildarinnar
Þátttaka í teymisvinnu
Fræðsla og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Auglýsing birt12. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (36)
Landspítali
Sérfræðilæknir í bæklunarskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á almenna endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri ræstingaþjónustu á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Námsstaða ljósmóður í fósturgreiningu
Landspítali
Landspítali
Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir fæðingarteymis
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga við Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í innlagnastjórn
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Áhugavert starf á brjóstaskurðlækningadeild á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á menntadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum
Landspítali
Landspítali
Speciallæge i endokrinologi ved Landspitali, Island
Landspítali
Landspítali
Specialist in Endocrinology
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Landspítali