Neyðarlínan
Neyðarlínan

Neyðarverðir

Neyðarlínan óskar eftir að ráða neyðarverði til að annast svörun fyrir neyðarnúmerið 112 ásamt netspjalli, greina erindi, leiðbeina og virkja viðeigandi viðbragðsaðila. Boðið er upp á krefjandi, ábyrgðarmikið en jafnframt gefandi framtíðarstarf í traustu vinnu umhverfi.

Óskað er eftir starfskrafti í 100% starf á öllum tímum sólarhringsins. Unnið er á vöktum í sveigjanlegu vaktakerfi og í upphafi starfs fá neyðarverðir markvissa þjálfun í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Fimm ára farsæl reynsla af almennum vinnumarkaði
  • Góð almenn tölvukunnátta og innsláttarhraði
  • Framúrskarandi tök á íslensku og ensku, kunnátta í öðrum tungumálum mikill kostur
  • Almenn þekking á landinu
  • Hreint sakavottorð
Persónulegir eiginleikar
  • Geta til að taka stjórn í erfiðum aðstæðum og halda skýrri hugsun undir álagi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
  • Góð greiningarhæfni
  • Ríkir samstarfshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund, samviskusemi og sveigjanleiki
  • Aðlögunarhæfni
Nánari upplýsingar

Hjá Neyðarlínunni starfar hópur af frábæru fólki með fjölbreyttan bakgrunn, þekkingu og reynslu sem er grunnurinn að starfsemi Neyðarlínunnar. Talsverð þróun hefur orðið á starfsemi 112, m.a. með opnun ofbeldisgáttar og netspjalls. Á komandi misserum heldur þróun næstu kynslóðar neyðarsvörunar áfram vegna stöðugra framfara á sviði neyðarþjónustu.

Neyðarlínan sér um neyðar- og öryggisþjónustu á Íslandi og starfrækir til þess neyðarsvörun 112 og Tetra fjarskiptakerfið auk þátttöku í rekstri Vaktstöðvar siglinga og fleiri verkefnum. Neyðarlínan vinnur í nánu samstarfi við lögreglu ásamt því að boða björgunar- og neyðarsveitir á öllu landinu og er tengiliður milli almennings og viðbragðsaðila.

Gildi Neyðarlínunnar eru fagmennska, hjálpsemi, viðbragðsflýti sem endurspeglar vel þá menningu og verklag sem tíðkast hjá Neyðarlínunni. Markmið Neyðarlínunnar er að vera traustur vinnustaður fyrir hæft starfsfólk þar sem þjónustuvilji og hröð og skjót viðbrögð fara saman. Neyðarlínan leggur mikla áherslu á faglega þekkingu starfsmanna og fjárfestir í fræðslu og þjálfun með skýr markmið í huga.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar