Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic

Áhafnafulltrúi (Crew Plan)

Flugfélagið Atlanta ehf. leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í áhafnadeild félagsins. Deildin gegnir lykilhlutverki í að tryggja að flugrekstur félagsins sé studdur með rétt skipulagðri, hæfri og tiltækri áhöfn til lengri og skemmri tíma.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi alþjóðlegu umhverfi þar sem nákvæmni, skipulagshæfileikar og góð yfirsýn skipta sköpum. Starfið krefst bæði sjálfstæðra vinnubragða og náins samstarfs innan teymis og við aðrar deildir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Áætla og tryggja nægjanlega mönnun flugáhafna til lengri og skemmri tíma
  • Hanna og viðhalda vaktamynstrum (rotations) fyrir flugáhafnir félagsins
  • Fylgjast með og stýra vinnuframboði, fríum, veikindum og samningsbundnum réttindum
  • Tryggja að réttindi, þjálfun og leyfi áhafna séu í gildi hverju sinni
  • Skipuleggja og samhæfa endurmenntun og þjálfun í samvinnu við þjálfunardeild
  • Yfirfara launatengd gögn, álag og greiðslur til verktaka
  • Halda utan um og viðhalda gögnum í áætlanakerfum og tryggja gæði upplýsinga
  • Yfirfara og viðhalda nauðsynlegum skjölum flugáhafna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Mjög góð skipulagsfærni
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Mjög gott vald á ensku (annað tungumál er kostur)
  • Góð Excel kunnátta og færni í gagnavinnslu
  • Reynsla úr flugheimi er kostur
Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar