Airport Associates
Airport Associates
Airport Associates

Hlutastarf í Ground Operations Center

Airport Associates leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að starfa í Ground Operations Center. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni í hröðu og spennandi vinnuumhverfi á Keflavíkurflugvelli.


Um er að ræða 50% hlutastarf með dag- og kvöldvöktum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og unnið til loka september.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almennt hleðslueftirlit.
  • Umsjón á farþega- og fraktflugi.
  • Gerð hleðsluskráa og hleðslufyrirmæla.
  • Samskipti við aðrar deildir innan fyrirtækisins og flugáhafnir.


Hæfniskröfur:

  • Reynsla og/eða menntun í flugtengdri starfsemi æskileg.
  • Góð enskukunnátta.
  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Hreint sakavottorð.


Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar við Keflavíkurflugvöll. Starfsemi félagsins nær til alhliða þjónustu við íslensk og erlend flugfélög, þar á meðal hleðslu og affermingu farms, innritun farþega, fraktafgreiðslu og ræstingu.

Nánari upplýsingar veitir:

Íris Ósk Guðlaugsdóttir, mannauðssérfræðingur, [email protected]

Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar