

Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri öryggisgeðdeild
Laus er til umsóknar ný staða hjúkrunardeildarstjóra í geðþjónustu Landspítala. Um er að ræða stöðu á nýrri legudeild sem gert er ráð fyrir að opni í nýuppgerðu húsnæði á Kleppi um næstu áramót.
Við leitum að kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða uppbyggingu á nýrri deild frá grunni, sem m.a felur í sér mótun þjónustu og uppbyggingu og þjálfun mannauðs ásamt öðrum stjórnendum og samstarsfólki. Umsækjendur þurfa að hafa hæfni til að leiða þverfaglega teymisvinnu og notendamiðaða nálgun, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs og vera í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og nýtt starfsfólk deildarinnar.
Nýja deildin verður 8 rúma legudeild sem mun sinna sérhæfðri meðferð og endurhæfingu sjúklinga með alvarlegan og þungan geðrænan vanda. Meðferðarnálgun deildarinnar er fjölþætt og ræðst af þörfum og getu hvers og eins sjúklings. Meginmarkmið meðferðarinnar er að sjúklingar fái þá meðferð og endurhæfingu sem er nauðsynleg til þess að þeir geti komist aftur út í samfélagið með góðum lífsgæðum. Miklar og heildrænar umbætur standa nú yfir í réttar- og öryggisgeðþjónustunni bæði á húsnæði og starfsemi og mun nýr hjúkrunardeildarstjóri taka virkan þátt í þeim.
Hjúkrunardeildarstjóri er í forystu fyrir starfsemi legudeildarinnar ásamt yfirlækni réttar- og öryggisgeðþjónustu og stýrir daglegum rekstri. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra, yfirlækni deildar, aðra deildarstjóra í réttar- og öryggisgeðþjónustu og aðra stjórnendur þeirra fagstétta sem starfa á einingunni. Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2026. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í geðþjónustu.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfsemi, flæði og gæðum hjúkrunarþjónustu; setur markmið um umbætur og öryggi og tryggir eftirfylgni; stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og framkvæmdastjóra
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan geðþjónustu
- Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan geðþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
- Reynsla af þjónustu við sjúklinga með alvarlegan geðvanda og fjölþættar þjónustuþarfir
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða uppbyggingu, breytingar og umbætur
- Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og lausnamiðun
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Íslenska
Enska








































