

Viltu bæta lífsgæði fólks?
Hjálpartækjadeild STOÐAR leitar að liðsauka. Um er að ræða gefandi og spennandi starf viðskiptastjóra í samhentu teymi fagfólks sem sér um sölu, ráðgjöf, þjónustu og afgreiðslu á hjálpartækjum til einstaklinga og stofnana.
Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni og faglega þekkingu til að taka á móti skjólstæðingum og finna réttu lausnina hverju sinni. Einnig þarf viðkomandi að búa yfir frumkvæði og getu til að hrinda verkefnum í framkvæmd, vera árangursdrifinn og hafa gott auga fyrir nýjum tækifærum og umbótum.
Starfið er mjög fjölbreytt og felur í sér allt frá ráðgjöf við skjólstæðinga, pantanir og birgðahald, samskipti við erlenda birgja til samsetninga og afhendinga á hjálpartækjum.
Vöruflokkar sem viðkomandi mun bera ábyrgð á eru hjólastólar, göngugrindur og önnur hjálpartæki.
- Ráðgjöf, sala og markaðssetning á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og einstaklinga
- Samskipti við annað heilbrigðisstarfsfólk sem snýr að meðferð og þjónustu fyrir skjólstæðinga
- Vörukynningar, fræðsla og eftirfylgni fyrir notendur og heilbrigðisstarfsfólk
- Samsetning, stilling og afhending hjálpartækja ásamt ráðgjöf í verslun og sýningarsal
- Samstarf við erlenda birgja, Sjúkratryggingar Íslands og aðra hagsmunaaðila
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hjúkrunarfræði eða verkfræði
- Þekking og/eða áhugi á hjálpartækjum og heilbrigðsvörum
- Reynsla og/eða áhugi af sölu og markaðsmálum
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt lífsviðhorf
- Greininga- og skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi
Íslenska










