Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild Brjóstamiðstöðvar Landspítala.

Brjóstamiðstöðin sér um skimun fyrir brjóstakrabbameini á landsvísu og veitir heildræna þjónustu fyrir einstaklinga með sjúkdóma í brjóstum og einstaklinga með auknar líkur á brjóstakrabbameini. Starfsemin byggir á öflugri, þverfaglegri teymisvinnu lækna, hjúkrunarfræðinga, geislafræðinga og fleiri starfsstétta.

Starfsemin er mjög fjölbreytt en þar fer meðal annars fram brjóstaskimun og sérskoðanir, greining sjúkdóma og ákvörðun meðferða, undirbúningur og eftirlit eftir skurðaðgerðir, krabbameinslyfjameðferðir og geislameðferðir. Einnig er þar starfandi erfðamóttaka fyrir einstaklinga með genabreytingu sem felur í sér auknar líkur á brjóstakrabbameini auk eftirlits og mats með tilliti til áhættuminnkandi aðgerða. Ráðgjöf, fræðsla og stuðningur skipar stóran sess í starfsemi Brjóstamiðstöðvar.

Á göngudeild Brjóstamiðstöðvar starfar öflugt teymi reyndra hjúkrunarfræðinga sem gegna lykilhlutverki í þjónustunni sem tengiliðir við skjólstæðinga deildarinnar. Hjúkrunarteymið leggur metnað í að veita faglega og örugga þjónustu í samstarfi við aðrar starfsstéttir og taka virkan þátt í stöðugum umbótum og þróun þjónustu fyrir skjólstæðingahópinn. Mikil tækifæri gefast því til starfsþróunar og þátttöku í þróun þjónustu.

Í boði er einstaklingshæfð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Viðkomandi þarf að búa yfir samskiptahæfni, hafa áhuga á þróun þjónustu, bættum ferlum og eiga auðvelt með að starfa í teymi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Starfshlutfall er 60-100%, unnið er í dagvinnu og er upphaf starfa samkomulagsatriði.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Kristrúnu, deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta er áskilin
Helstu verkefni og ábyrgð
Greina hjúkrunarþarfir, veita hjúkrunarmeðferð og bera ábyrgð á meðferð skv. starfslýsingu
Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur spítalans
Veita markvissa fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
Einkennameðferð og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu þeirra sem sinna meðferð og stuðningi við sjúklinga brjóstamiðstöðvar
Þátttaka í þróun og innleiðingu nýjunga innan hjúkrunar á deildinni
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (27)
Landspítali
Félagsráðgjafi í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur- Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraþjálfari - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á öldrunardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma - afleysing
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í bæklunarskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Málastjóri í Laufeyjarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Landspítali