

Geislafræðingur- Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Við óskum eftir metnaðarfullum geislafræðingi í okkar góða teymi á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar. Unnið er í dagvinnu virka daga og er starfshlutfall og upphaf starfa samkomulag.
Á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð framkvæma geislafræðingar skimanir fyrir brjóstakrabbameini og klínískar myndgreiningar brjóstameina. Geislafræðingarnir ferðast einnig út um allt land og framkvæma þar brjóstaskimanir. Starfið er mjög fjölbreytt og mikil tækifæri fyrir geislafræðinga að taka þátt í þróun og uppbyggingu brjóstarannsókna. Unnið er að því að votta starfsemina og í þeirri vinnu gegna geislafræðingar lykilhlutverki.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
Enska





































