

Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðinemar á slysa- og bráðamóttökudeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarfræðinema í afleysingastörf á slysa- og bráðamóttökudeild. Um er að ræða vaktavinnu. Starfshlutfall er samkomulag.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Slysa- og bráðamóttaka HSS er opin allan sólarhringinn og sinnir slösuðum og bráðveikum. Þar fer einnig fram brotaendurkoma. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi eða að hafa lokið þriggja ára námi í hjúkrunarfræði
- Faglegur metnaður og vandvirkni
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Starfsreynsla er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Íslenska
Enska










