Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Deildarstjóri óskast til starfa

Heilsuvernd Vífilsstöðum óskar eftir að ráða deildarstjóra til starfa. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.

Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og rekstur deildar
  • Starfsmannastjórnun og teymisvinna
  • Skipulagning og eftirfylgni með hjúkrun og umönnun
  • Samskipti við íbúa, aðstandendur og aðra fagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og starfsréttindi hjúkrunarfræðings
  • Stjórnunarreynsla er æskileg
  • Áhugi og starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Færni í notkun upplýsingatækni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar