
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Allir okkar skjólstæðingar eru komnir með samþykkt færni- og heilsumat og dvelja á Heilsuvernd Vífilsstöðum uns þeir fá boð um varanlega búsetu á hjúkrunarheimili.

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa
Við leitum hjúkrunarfræðingum til starfa. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.
Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn hjúkrunarstörf
- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
- Þátttaka í þróunarverkefnum
- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri óskast til starfa
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Heimahjúkrun Norðvestur í nýju og glæsilegu húsnæði
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð
Landspítali

Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur/Ljósmóðir óskast í dagvinnu
Livio Reykjavík

Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðinemar á slysa- og bráðamóttökudeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í vaktavinnu
Mörk hjúkrunarheimili

Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri öryggisgeðdeild
Landspítali

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Ljósmóðir - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins