
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Allir okkar skjólstæðingar eru komnir með samþykkt færni- og heilsumat og dvelja á Heilsuvernd Vífilsstöðum uns þeir fá boð um varanlega búsetu á hjúkrunarheimili.

Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar óskast til starfa
Við leitum nú að sjúkraliðum eða einstaklingum sem eru í námi á sjúkraliðabraut til starfa. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.
Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita skjólstæðingum Vífilsstaða líkamlega, andlega og félagslega aðhlynningu
- Verkefni tengd almennri umönnun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliðamenntun eða í námi á sjúkraliðabraut
- Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta er æskileg
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (11)

Lyfjaskömmtun/afgreiðsla
Borgar Apótek

Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Landspítali

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á slysa- og bráðadeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Sjúkraliði á öldrunardeild Landakoti
Landspítali

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Heilbrigðismenntað starfsfólk í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Tanntæknir/Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannlæknastofan Álfabakka 14 Mjódd ehf.

Aðstoðarmanneskja tannlæknis
Tannlæknastofa Kópavogi

Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali

Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Landspítali