
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Allir okkar skjólstæðingar eru komnir með samþykkt færni- og heilsumat og dvelja á Heilsuvernd Vífilsstöðum uns þeir fá boð um varanlega búsetu á hjúkrunarheimili.

Sjúkraþjálfari óskast til starfa
Heilsuvernd Vífilsstöðum óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.
Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjálfun og meðferð einstaklinga
- Skipulag hópþjálfunar
- Fræðsla til skjólstæðinga
- Vinna í þverfaglegu teymi
- Þátttaka í þróun verkefna og þjónustum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf og starfsleyfi landlæknis
- Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar er kostur
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)



