

Heilsuleikskólinn Heiðarsel - Leikskólakennarar/starfsfólk
Heilsuleikskólinn Heiðarsel leitar að öflugum leikskólakennara eða starfsmanni í leikskóla sem hefur áhuga á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi þar sem vellíðan, leikur og hreyfing eru í fyrirrúmi. Við leitum að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í uppeldi og menntun barna í samvinnu við öflugt starfsfólk.
Heiðarsel er fjögurra deilda og hefur starfað samkvæmt viðmiðum Heilsustefnunnar frá 2004 þar sem markmiðin eru að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á leik, hreyfingu, næringu og sköpun í leik og starfi. Aðrar áherslur í starfi leikskólans eru læsi, stærðfræði og tónlist.
Einkunnarorð skólans eru hreyfing, næring, listsköpun og leikur.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Um 100% starf er að ræða og er vinnutíminn 8:15 – 16:15 Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 5. ágúst 2026.
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
- Leikskólakennaramenntun (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af störfum með börnum
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Samskiptahæfni og áhugi á að vinna í hóp
- Ábyrgð og stundvísi
- Íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð skilyrði
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Íslenska










