
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðvar Reykjanesbæjar
Langar þig að starfa í lifandi og skemmtilegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á þátttöku, vellíðan og jákvæð samskipti ungmenna?
Félagsmiðstöðvar Reykjanesbæjar leita að öflugum og áhugasömum frístundaleiðbeinendum til starfa. Um er að ræða störf í 20–50% starfshlutfalli, að mestu leyti síðdegis og á kvöldin. Starfið hentar vel með námi eða annarri vinnu.
Í félagsmiðstöðvum Reykjanesbæjar er lögð áhersla á faglegt og metnaðarfullt tómstundastarf fyrir ungmenni í 5.–10. bekk með það að markmiði að skapa öruggt, skemmtilegt og hvetjandi umhverfi.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að starfsfólk endurspegli þau í sínum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeina og styðja ungmenni í daglegu starfi félagsmiðstöðvar
- Skipuleggja og taka þátt í fjölbreyttu hópastarfi, viðburðum og verkefnum
- Skapa jákvætt, öruggt og hvetjandi umhverfi
- Efla þátttöku, félagsfærni og virk samskipti ungmenna
- Taka þátt í þróun starfsins og samstarfi við annað starfsfólk
- Samskipti við forsjáraðila eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af félagsmiðstöðva-, íþrótta- eða tómstundastarfi
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldisfræði eða sambærilegt
- Reynsla af skipulagningu hópastarfs, viðburða eða verkefna
- Námskeið eða þjálfun sem tengist ungmennastarfi
- Góð tölvufærni og vilji til að tileinka sér nýja tækni
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að skapa öruggt og jákvætt umhverfi fyrir ungmenni
- Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
- Tungumálakunnátta umfram íslensku kostur
- Hreint sakavottorð skilyrði
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 88, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarforstöðumaður frístundar í Borgarbyggð - GBF-deild
Borgarbyggð

Frístundaleiðbeinandi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Álftanesskóli - umsjónarmaður frístundaheimilisins Álftamýri
Garðabær

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla skólaárið 2026-2027
Lindaskóli

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Leikskólakennari skólaárið 2026-2027
Baugur

Forstöðumaður frístundar í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær