Garðabær
Garðabær
Garðabær

Álftanesskóli - umsjónarmaður frístundaheimilisins Álftamýri

Álftanesskóli er heildstæður grunnskóli. Í skólanum eru tæplega 400 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína – allir eru einstakir. Álftanesskóli starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.

Í frístundaheimlinu fer fram frístundastarf fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Álftanesskóla að lokinni kennslu. Að jafnaði dvelja tæplega 100 börn daglega. Á Álftanesi er góð samvinna milli frístundaheimilis, skóla, tónlistarskóla og íþróttafélaga. Í Álftanesskóla vinna allir starfsmenn saman samkvæmt stefnu skólans, einkunnarorðum hans og leiðarljósum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning og umsjón með faglegu starfi og daglegum rekstri frístundar
  • Samskipti og samstarf við skólann, félög og aðra þá sem bjóða upp á frístundastarf fyrir börn
  • Samstarf og samskipti við foreldra og starfsfólk skólans
  • Upplýsinga- og kynningarstarf
  • Umsjón með starfsmönnum frístundaheimilisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, frumkvæði og framtakssemi
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Almenn tölvukunnátta auk skipulags- og stjórnunarhæfileika
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar