Garðabær
Garðabær
Garðabær

Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - starfsmenn í íþróttamannvirki

Garðabær auglýsir störf við íþróttamiðstöðina Urriðaholti. Þar eru sundlaug og íþróttasalur sem þjóna skólakennslu, æfinga- og keppnishópum í körfubolta, handbolta, fimleikum og fleiri íþróttum auk almennings sem stundar sundlaugina og hópatíma í heilsurækt.
Starfið er unnið í vaktavinnu.
Leitað er að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við skóla, íþróttafélög og leigutaka
  • Mótun umgengni og eftirlit með iðkendum og gestum mannvirkisins
  • Eftirlit með búnaði og hússtjórnarkerfum
  • Eftirlit á sundlaugarsvæði
  • Ræstingar og viðhald hreinlætis er samofið verkefnum á hverri vakt
  • Afgreiðsla og önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
  • Góð þjónustulund.
  • Sundlaugavarðarpróf (námskeið í boði í byrjun vinnu).
  • Innsýn í þarfir íþróttagreina varðandi æfinga- og keppnisaðstöðu.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Sund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar