Garðabær
Garðabær
Garðabær

Hofsstaðaskóli - leiðbeinandi á frístundaheimili

Frístundaheimilið Regnboginn í Hofsstaðaskóla þjónar um 200 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi. Í boði er hlutastarf eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Opnunartími er frá kl. 13:30 -16:30. Í frístundaheimilinu dvelja börnin eftir að skóla lýkur við leiki og ýmis verkefni.

Í Hofsstaðaskóla eru 460 nemendur í 1.-7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða og virkja nemendur í leik og starfi á frístundaheimili
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum
  • Vinna eftir áætlun um starfsemi frístundaheimila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi B-2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu

Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar