Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Víðistaðaskóli - Hraunið

Viltu fá reynslu í verkefnastjórn í félagsmiðstöð?

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða í spennandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðina Hraunið sem er hluti af tómstundamiðstöð skólans. Félagsmiðstöðin býður börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Auglýst er eftir verkefnisstjóra í félagsmiðstöðinni Hrauninu í 75% starf, með möguleika á 100% starfi ef viðkomandi tekur auka vaktir í félagsmiðstöð eða frístund.

Skemmtilegt og gefandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðinni Hrauninu.

Starf verkefnastjóra er fjölbreytt og skemmtilegt. Verkefnastjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Verkefnastjóri ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Verkefnastjóri vinnur náið með deildarstjóra tómstundamiðstöðvar.

Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli og að skapa vettvang þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni. Verkefnastjóri í félagsmiðstöð ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni.

Um er að ræða 75% starf með möguleika á hærra starfshlutfalli. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna að hluta. Fjölbreyttur vinnutími í boði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning á faglegu starfi félagsmiðstöðva
  • Sinna forvörnum með því að vera jákvæð fyrirmynd, fræða, fjalla um og hafa jákvæð áhrif á börn og unglingana með hin ýmsu málefni sem tengjast þeirra daglega lífi
  • Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við deildarstjóra, starfsmenn og börn og unglinga
  • Stuðlar að góðu samstarfi og upplýsingaflæði milli ólíkra aðila
  • Er leiðbeinandi og veitir starfsmönnum leiðsögn og/eða tilsögn um framkvæmd vinnunnar
  • Vinnur að samstarfsverkefnum, situr í nefndum og starfshópum sem tengjast starfi tómstundamiðstöðvarinnar
  • Sjá um verkefni tengd félagsstarfi unglinga í skólanum
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (BA, B.Ed. eða BS gráða) á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldis og menntunarfræða, grunnskólakennarafræða eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið í frístundaheimili eða félagsmiðstöð
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Samskipta- og samstarfshæfni í mannlegum samskiptum

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, [email protected]. eða Margrét Rebekka Valgarðsdóttir, deildarstjóri tómstundastarfs í Víðistaðaskóla, [email protected].

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (24)
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Rytmískur söngkennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
UT kennsluráðgjafi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Smíðakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Dönskukennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tengiliður farsældar barna – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Almenn sumarstörf fædd 2008 og eldri - Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær