Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar

Leikskólastjóri

Fjölskyldusvið sveitarfélagsins Árborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólastjóra Goðheima. Við leitum að öflugum og framsæknum leiðtoga til að stýra skólastofnun í ört stækkandi sveitarfélagi.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi, starfshlutfall er 100%.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita leikskólanum faglega forystu.  

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri leikskólans.  

  • Leiða stjórnunarteymi leikskólans og bera ábyrgð á sýn og stefnu skólans í samvinnu við starfsfólk og nemendur.  

  • Styðja starfsfólk, ýta undir góðan starfsanda og efla faglegt lærdómssamfélag. 

  •  Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum. 

  • Tryggja að skólinn starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá grunnskóla, læsis- og menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar.   

  • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsfólk. 

  • Vinna að þróun og uppbyggingu leikskólastarfs í Árborg í samstarfi við fjölskyldusvið og aðra aðila skólasamfélagsins

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stjórnunar- og leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði.  

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara er skilyrði 

  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar kostur 

  • Farsæl stjórnunarreynsla  

  • Reynsla af teymisvinnu 

  • Þekking á rekstri, áætlanagerð, mannauðsmálum og fjármálastjórn.  

  • Framsækni í þróunar- og umbótastarfi.  

  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun.  

  • Áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum.  

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.  

Auglýsing birt16. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Engjaland 21, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar