
Leikskólastjóri
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Seljaborg lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.
Seljaborg er fjögurra deilda leikskóli með 65 börnum. Leikskólinn stendur við Tungusel í Breiðholti. Leikskólinn er í dag þriggja deilda en gert er ráð fyrir að ný deild ásamt endurbættu starfsmannarými verði opnað eftir sumarleyfi. Gott útivistarsvæði er í nágrenni leikskólans.
Áhersluþættir leikskólans eru lýðræði, valdefling og virk þátttaka barna í skapandi og inngildandi leikskólastarfi þar sem leikur, læsi, útinám og sjálfstæði eru lykilþættir.
Námskrá skólans byggir á leik sem meginnámsleið barnsins og fjölbreyttum tækifærum til náms, sköpunar og áhrifa í lýðræðislegu skólasamfélagi.
- Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða,aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar
- Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni
- Standa vörð um farsæld, velferð og nám barna skólans
- Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum
- Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi
- Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
- Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deila ábyrgð á velferð barna.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
· Leyfisbréf
· Leikskólakennaramenntun er æskileg
· Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í leikskóla æskileg
· Kennslureynsla á leikskólastigi
· Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar
· Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun
· Lipurð og hæfni í samskiptum
· Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði.
· Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf
· Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
· Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Íslenska

