Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð

Frístundarleiðbeinandi

Frístund óskar eftir að ráða frístundarleiðbeinanda í u.þ.b. 45% starfshlutfall í frístund og sumarfrístund (starfshlutfall eykst á opnunartíma sumarfrístundar), en um framtíðarstarf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í um miðjan ágúst 2026.

Meginmarkmið starfsins er að bjóða upp á innihaldsríkt og þroskandi frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi barna lýkur. Markmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf frístundar. Starfsfólk frístundar leitast við að mæta börnum eftir þeirra þörfum, til að efla sjálfstraust, sjálfsstæði og félagsfærni þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðbeina og styðja börn í leik og starfi.
  • Skipuleggja faglegt starf og leiða fjölbreyttar og skapandi frístundastundir fyrir börn.
  • Tryggja öryggi og vellíðan þátttakenda í öllu starfi.
  • Stuðla að samstarfi við foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila innan sveitarfélagsins.
  • Fylgja stefnu Dalvíkurbyggðar í frístundamálum og leggja sitt af mörkum til þróunar starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi að vinna með börnum. 
  • Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og leiðsögn hópa.
  • Frumkvæði, ábyrgðartilfinning og skipulagshæfni.
  • Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð samkvæmt lögum.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2026

Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur28. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvík , 620 Dalvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar