Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Flokkstjóri í heimastuðning

Heimaþjónusta Reykjavíkur Norðvestur leitar að jákvæðum og skipulögðum aðila í starf flokkstjóra heimastuðnings. Um er að ræða ótímabundið starf í dagvinnu.

Unnið er eftir samþættri þjónustu heimastuðnings, heimahjúkrunar og endurhæfingarteyma með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum. Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, s.s. aðstoð við heimilishald, þrif, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl. Veittur er sérstakur stuðningur við ákveðna einstaklinga til að rjúfa félagslega einangrun og við þátttöku í daglegu lífi.

Flokkstjóri sér um stýringu daglegra starfa starfsmanna í heimastuðning ásamt að þjónusta fjölbreyttan hóp íbúa í samráði við teymisstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og eftirlit með framkvæmd heimastuðnings í samráði við teymisstjóra
  • Dagleg skipulagning á verkefnum starfsmanna
  • Samskipti við skjólstæðinga og starfsmenn
  • Þjálfun starfsmanna og fræðsla
  • Ýmis tölvuvinna
  • Leysir af vegna forfalla starfsmanna eftir þörfum
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Félagsliðamenntun eða sambærileg menntun
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum
  • Reynsla á sviði heimaþjónustu
  • Frumkvæði og skipulaghæfileikar
  • Hæfni í samskiptum
  • Stundvísi og sjálfstæði í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Ökuréttindi
  • Þekking á dala care er kostur
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi
Auglýsing birt24. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar