Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Leiðtogi listasmiðju fyrir fatlað fólk

Vilt þú leiða skapandi listasmiðju þar sem þátttaka, sköpun og mannleg tengsl fá að njóta sín?

Við leitum að einstaklingi með áhuga á listsköpun, mannrækt og valdeflandi starfi með fötluðu fólki. Hér gefst einstakt tækifæri til að þróa og móta listasmiðju í samstarfi við þátttakendur og öflugt samstarfsfólk.

Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi, ásamt smíðastofu, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar, með áherslu á skapandi, valdeflandi og styðjandi umhverfi.

Listasmiðjan er lifandi og skapandi vettvangur þar sem fatlað fólk tjáir sig, skapar og þróar færni sína í gegnum leir, textíl og myndlist. Þar eru jafnframt hannaðar og framleiddar fjölbreyttar handverksvörur til sölu. Við leggjum áherslu á virðingu, þátttöku, sköpunargleði og einstaklingsmiðaðan stuðning

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða leirsmiðjuna og uppbyggingu listasmiðjunnar.
  • Umsjón með daglegri starfsemi, skipulagi og innkaupum.
  • Leiðbeina og styðja þátttakendur í skapandi starfi með áherslu á leir, myndlist og textíl.
  • Þróa skapandi verkefni sem efla þátttöku, sjálfstæði og færni.
  • Náið samstarf við þátttakendur, deildarstjóra og annað starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði leirlistar, listkennslu, þroskaþjálfunar eða sambærilegra greina.
  • Sérþekking og reynsla af vinnu með leir er skilyrði.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg.
  • Reynsla af textíl, myndlist eða öðrum listgreinum er æskileg.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Hreint sakavottorð samkvæmt lögum og reglum Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Aðgangur að sundlaugum, söfnum og bókasöfnum Reykjavíkur
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skeifan 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar