

Suðurhlíðarskóli óskar eftir þroskaþjálfa
Í Suðurhlíðarskóla eru um 65 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli sem leggur mikla áherslu á þjálfun í félagsfærni og verið er að innleiða Leiðsagnarnám. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Starfsmannahópurinn er öflugur og samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins.
Við leitum eftir þroskaþjálfa í 60% starfshlutfall.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn H Theodórsdóttir, skólastjóri í síma 896-5343. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Vinna að áætlanagerð, þ.m.t. einstaklingsáætlun og stuðningaáætlun í samráði/samstarfi við kennara, iðjuþjálfa, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
- Vinna með nemanda í námsveri, í skólastofu, í útikennslu og frímínútum.
-
Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, iðjuþjálfa, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
-
Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn, setur og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila.
-
Annast þjálfun og fræðslu um fatlanir og þroskafrávik til stuðningsfulltrúa og annarra starfsmanna skólans.
-
Veitir foreldrum fatlaðra nemenda ráðgjöf eftir því sem við á.
-
Fræðir nemendur skólans um þroskafrávik og fatlanir eftir því sem við á.
Menntunar og hæfniskröfur:
-
Háskólapróf í þroskaþjálfun eða sambærileg menntun
-
Framúrskarandi íslensku kunnátta
-
Þekking á kennslu- og uppeldisfræði
-
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
-
Hreint sakavottorð
-
Mjög góð þekking og kunnátta á tölvubúnað og helstu upplýsinga og tækniforrit.
Íslenska
Enska





