NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Skemmtileg aðstoðarkona óskast – hlutastarf sem hentar vel með skóla

Hress og ábyrg aðstoðarkona, 20 ára eða eldri, óskast í skemmtilegt og gefandi hlutastarf.

Starfið felst í að veita 13 ára stelpu notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Hún býr í Garðabæ ásamt foreldrum sínum og systkinum. Starfið snýst um að styðja hana í daglegu lífi, tómstundum og skemmtilegri samveru.

Þetta er gefandi starf þar sem þú færð tækifæri til að skapa góðar stundir, veita stuðning og vera mikilvægur hluti af daglegu lífi ungrar stúlku.

Áhugamál hennar eru meðal annars:

  • Sundferðir
  • Bíóferðir
  • Verslunarferðir
  • Kaffihúsaferðir
  • Leikir og samvera heima

Vinnutími

Virka daga:

  • Kl. 16:00–19:30

Um helgar:

  • Kl. 07:00–13:00
  • Kl. 13:00–19:00

Starfið hentar einstaklega vel með skóla.

Við leitum að aðstoðarkonu sem:

  • Er líkamlega hraust.
  • Er þolinmóð, hlý og sýnir umhyggju og virðingu í samskiptum.
  • Er hress, jákvæð og hefur gaman af því að vinna með fólki.
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi.
  • Er stundvís og áreiðanleg.
  • Talar íslensku.
  • Er með gilt bílpróf og hefur afnot af bíl.

Um NPA

Tilgangurinn með notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) er að einstaklingar geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi á eigin forsendum. NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf óháð fötlun.

Nánari upplýsingar um notendastýrða persónulega aðstoð og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf má finna á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar. NPA miðstöðin

Laun

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar