NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Áreiðanleg aðstoðarkona óskast

Áreiðanleg aðstoðarkona sem er tilbúin að vinna í krefjandi aðstæðum óskast

Ég er 57 ára gömul kona að leita mér að persónulegum aðstoðarkonum á dagvaktir og afleysingar. Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, en ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs (klæða mig, koma mér milli staða, eldhússtörf o.s.frv.). Í frítíma mínum hef ég gaman að bakstri, útivist, fara í leikhús, göngutúra og ferðast.

Ég er með mikið kattarofnæmi þannig umsækjandi má ekki eiga kött eða vera í kringum ketti.

Aðstoðarkonur mínar þurfa vera íslenskumælandi, vera áreiðanlegar, umhyggjusamar, skipulagðar og heilsuhraustar. Konur á aldrinum 30 ára og eldri, með reynslu af umönnunarstörfum sem eru tilbúnar til að vinna við persónulega aðstoð eru hvattar til að sækja um. Um tímabundið starf er að ræða.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðin Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Auglýsing birt21. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar