NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Fjölbreytt og gefandi NPA hlutastarf á Selfossi / Rewarding part-time NPA role in Selfoss

English below//

Ég er að leita að traustum og jákvæðum aðstoðarmanni, 22 ára eða eldri, í 45% starf á Selfossi. Starfið er á virkum dögum seinnipartinn og hentar vel fyrir einstakling sem vill fjölbreytt, mannlegt og gefandi starf þar sem engir tveir dagar eru alveg eins. Mig vantar aðstoð við hinar ýmsu athafnir daglegs lífs eins og klæðnað, áhugamál, hreinlæti, lengri og styttri ferðalög, tiltekt o.fl. Aðstoðin fer fram á heimili mínu og þeim stöðum sem ég heimsæki í daglegu lífi.

Ég er rúmlega þrítugur hreyfihamlaður karlmaður búsettur á 800, Selfossi en er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Ég er menntaður Kerfisstjóri og ek sérútbúnum bíl með stýripinna. Ég er afslappaður og mikill húmoristi og nýt þess að fara á tónleika, horfa á kvikmyndir, skemmta mér og njóta lífsins.

Vinnutími: Mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 15:00–19:00
Starfshlutfall: 45%
Staðsetning: Selfoss
Aukavaktir: Möguleiki á afleysingavökum

Menntunar- og hæfniskröfur

Ég er að leita að áreiðanlegum og heiðarlegum einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Mikilvægt er að aðstoðarfólk geti tekið leiðsögn og sýnt fagmennsku ásamt því að geta dregið sig í hlé þegar þörf krefur.

Umsækjendur þurfa að vera með gilt bílpróf, hreint sakavottorð og geta umgengist dýr

Reynsla af aðstoð við fatlað fólk er ekki nauðsynleg

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar: 36 stunda vinnuvika miðað við 100% starf.
  • Aðstoðarfólk fær oft næði í vinnunni á meðan ég er upptekinn við áhugamál.
  • Aðstoðarfólk fylgir mér bæði í leik og starfi sem gerir starfið fjölbreytilegt og gefandi.

Aðrar upplýsingar

  • Frekari upplýsingar um notendastýrða persónulega aðstoð má finna á vef NPA miðstöðvarinnar npa.is
  • Ef þú hefur ekki fyrri reynslu af aðstoð við fatlað fólk er ég meira en tilbúinn til að leiðbeina þér.
  • Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og SGS. Upplýsingar um launakjör má finna hér Launakjör
    Kjarasamninga má finna hér Kjarasamningur

-------------------------------------------------------------------------------------------------

I am looking for a reliable and positive assistant, 22 years or older, for a 45% position in Selfoss. The job takes place weekday afternoons and is well suited for an individual who wants a varied, human and rewarding job where no two days are exactly the same. I need help with various daily activities such as dressing, hobbies, hygiene, travel, cleaning, etc. The assistance will take place at my home and the places I visit in my daily life. I am a man in my early thirties with mobility impairments.

I live in Selfoss (800) but was born and raised in Vestmannaeyjar. I am a trained systems administrator and drive a custom-adapted car with a joystick. I‘m a calm and level-headed individual who enjoys going to concerts, socializing, and making the most of life.

Working hours: Mondays, Wednesdays, Thursdays and Fridays from 15:00–19:00
Employment rate: 45%
Location: Selfoss
Additional shifts: Possibility of substitute shifts

Education and Competency Requirements

I am looking for reliable and honest individuals with good interpersonal skills. It is important that assistants can take guidance and show professionalism, as well as step back when necessary.

Applicants must be able to interact with animals, have a valid driver's license, and no criminal record.

Experience in assisting people with disabilities is not required.

Job Benefits

  • Shorter work week: 36-hour work week for 100% employment.
  • Personal assistants often have downtime while I am engaged in hobbies or other activites.
  • Personal assistants accompany me in both work and play, making the job diverse and rewarding.

Other Information

  • Further information on personal assistance can be found on the NPA Center's website npa.is
  • If you do not have previous experience assisting people with disabilities, I am more than willing to guide you.
  • Salaries are paid according to the collective agreement of the NPA Center with Efling and SGS.
    More information on salaries.
    More information on the Collective agreement
Auglýsing birt7. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar