
Með bros á vör
Um er að ræða framsækna og hlýlega tannlæknastofu með góðum starfsanda. Þrír tannlæknar vinna á stofunni, 1 móttökuritari og 4 aðstoðarmenn. Verkefni eru fjölbreytt og spennandi og spanna vítt svið tannlækninga. Fyllingavinna, skurðaðgerðir, postulínsvinna og léttar tannréttingar.

Aðstoðarmanneskja á tannlæknastofu
Við erum að leita eftir áhugasömum, hlýjum og metnaðarfullum tanntækni, sjúkraliða eða lærdómsfúsum einstaklingi til aðstoðar á tannlæknastofunni Með bros á vör.
Starfið er fjölbreytt og felur m.a. í sér aðstoð við aðgerðarstól, sótthreinsun og samskipti við sjúklinga.
Við þurfum einstakling með getu og áhuga til að vinna undir álagi við spennandi og fjölbreytt verkefni með bros á vör.
Vinnutímar eru 8-15.45 alla virka daga, nema föstudaga 8-13.45. Starfið fer eingöngu fram á staðnum, engin fjarvinna í boði.
Nánari upplýsingar um stofuna má finna á: www.medbrosavor.is
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum verður svarað jafnóðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn aðstoð við stólinn og í móttöku
- Gagnataka, ljósmyndir, skann og röntgenmyndir
- Sótthreinsun á stól og verkfærum
- Samskipti við sjúklinga
- Afgreiðsla þegar þörf er á
Menntunar- og hæfniskröfur
- Heilbrigðismenntun t.d. tanntæknir, sjúkraliði eða sambærileg menntun. Getur líka hentað lærdómsfúsum og metnaðarfullum einstaklingi .
- Stundvísir, nákvæmir einstaklingar með góða þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, hæfni til að vinna með öðrum
- Geta og áhugi til að vinna undir álagi við spennandi og fjölbreytt verkefni
Fríðindi í starfi
- Létt snarl á vinnutíma
- Almennar tannlækningar
Auglýsing birt20. júlí 2026
Umsóknarfrestur26. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sóltún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Afgreiðslu starf ( íslenska skilyrði )
Aldan fisk og sælkeraverslun

Aðstoðarkona óskast í afleysingarstarf á Akureyri
NPA miðstöðin

NPA Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir konum í sumarvinnu til 18. ágúst
NPA miðstöðin

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Batch record reviewer / Sérfræðingur í yfirferð lotuskráa
Alvotech hf

Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Álftanesskóli - mötuneyti
Skólamatur

Teymisstjóri í sérhæfðu ráðgjafarteymi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu
Landspítali

Bílstjóri í þjónustu við fatlaða og eldri borgara
Teitur

Sérfræðingar í bókhaldi hjá ECIT
ECIT