

Óska eftir konum í sumarvinnu til 18. ágúst
Hæ hæ, ég er að leita að öflugum konum á aldrinum 25-45 ára til að aðstoða mig við allt milli himins og jarðar en ég nota hjólastól og þarf aðstoð við flest allt sem viðkemur mér, persónulega aðstoð, almenna matseld og heimilishald.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og aðstoðarfólkið mitt tekur að sér það hlutverk að vera einskonar framlenging af mér í þeim verkefnum sem ég þarfnast aðstoðar við.
Vinnutíminn er frá kl.17:00-23:00 3-4 daga í viku.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf núna.
Umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust, með bílpróf og íslensku kunnátta er mikilvæg.
Laun eru samkvæmt sérkjarasamningum NPA við Eflingu. Skoðið laun og réttindi hér: https://www.npa.is/index.php/storf/kjarasamningar-helstu-upplysingar
Hlakka til að heyra í ykkur :)
Íslenska




















