
Heimaþjónusta vegna fötlunar af völdum MND sjúkdóms
Ég er 74 ára karlmaður, sem vegna sjúkdóms míns (MND) naut áður heimaþjónustu félagsþjónustu Reykjavíkurborgar kvölds og morgna en síðan varð sú breyting á, að ég fékk svokallaðan beingreiðslusamning og því er mér eftir það ætlað að manna þessa þjónustu sjálfur. Hingað til hafa tveir einstaklingar skipt þessari þjónustu á milli sín skv. ákveðnu vaktaplani, enn nú þarf annar því miður að hætta fljótlega. Því auglýsi ég eftir einstaklingi sem er tilbúinn að liðsinna mér í hans stað. Vinsamlegast athugið að þetta er því hlutastarf, u.þ.b. 60 mín. á morgnanna og 40 mín. á kvöldin, sem skiptist milli tveggja aðila. (Ca. 30 klst. á mánuði á hvorn aðila)
Að morgni: Hjálp við að klæðast og komast á fætur, finna til morgunmat, bað einu sinni í viku o.fl.
Að kvöldi: Hjálp við að komast í rúmið o.fl.
Ekki eru gerðar sérstakar menntunarkröfur, en einhver reynsla að slíkri þjónustu auðvitað til bóta en samt ekki skilyrði.











