

Teymisstjóri í sérhæfðu ráðgjafarteymi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu
Geðþjónusta Landspítala leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum heilbrigðismenntuðum einstaklingi með góða samskiptafærni og áhuga á að taka þátt í uppbyggingu sérhæfðs teymis sem þjónustar heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins.
Viðkomandi mun hafa umsjón með starfsemi teymisins í nánu samstarfi við stjórnendur og stuðla að öflugu samstarfi við hagsmunaaðila verkefnisins.
Teymið er staðsett í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu. Þar starfar þverfaglegur hópur heilbrigðisstarfsfólks og er núverandi starfsemi fjórþætt:
Lögð er áhersla á öfluga þverfaglega teymisvinnu og stöðuga framþróun.
Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Landspítalinn er þverfaglegur vinnustaður og býður upp á líflegt starfsumhverfi.
Teymisstjóri mun verða virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar teymisins í samvinnu við stjórnendur. Unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum og bjóðast margvísleg tækifæri til starfsþróunar.
Ráðið er í starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Íslenska



































