

Hjúkrunardeildarstjóri/hótelstjóri sjúkrahótels við Hringbraut
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf hjúkrunardeildarstjóra/ hótelstjóra sjúkrahótels á lóð Landspítala við Hringbraut. Við leitum að kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi sjúkrahótelsins og byggja upp sterka liðsheild. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Hjúkrunardeildarstjóri sem jafnframt er hótelstjóri stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um málefni hótelsins. Markmiðið er að stytta meðallegutíma á spítalanum, efla dag- og göngudeildarþjónustu og bæta skilvirkni. Notendur sjúkrahótels verða ekki innskrifaðir á legudeildir á sama tíma og þeir dvelja á sjúkrahóteli, þeir þurfa að vera sjálfbjarga en gætu þurft eftirlit og aðstoð hjúkrunarfræðings/sjúkraliða eða sértæka þjónustu á dag- og göngudeildum.
Sjúkrahótelið er 75 herbergja og þar geta einnig dvalið aðstandendur sjúklinga, foreldrar sem bíða fæðingar eða fólk sem býr fjarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna Sjúkrahótelsins
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði sjúkrahótelsins
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi nauðsynleg
- Reynsla í stjórnunarhlutverki, þ.e. faglegri ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslegri ábyrgð er nauðsynleg
- Reynsla af rekstri sjúkrahótels er æskileg
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Íslenska




























































