Deildarstjóri geislameðferðardeildar á Landspítala.
Starf deildarstjóra geislameðferðardeildar Landspítala er laust til umsóknar. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum stjórnanda til að leiða og þróa starfsemi deildarinnar, efla þverfaglegt samstarf og byggja upp góða liðsheild og menningu sálræns öryggis. Starfið felur í sér náið samstarf við forstöðulækni, deildarstjóra geislaeðlisfræðideildar, yfirlækni og annað samstarfsfólk.
Á deildinni fer fram geislameðferð krabbameinssjúklinga og undirbúningur hennar. Deildin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi en um 1000 sjúklingar fá geislameðferð árlega og er eftirspurn hratt vaxandi.
Lögð er áhersla á framúrskarandi klíníska þjónustu í síbreytilegu hátækniumhverfi með öflugu þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu. Við höfum það að markmiði að skapa jákvæðan og hvetjandi starfsanda þar sem starfsfólk fær tækifæri til að taka þátt í umbótarvinnu samhliða daglegum störfum. Við leggjum sérstaka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart skjólstæðingum og samstarfsfólki.
Deildarstjóri er leiðtogi með faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu.
Starfshlutfall er100% og veitist starfið frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfir geislafræðings
Starfsreynsla sem geislafræðingur
Framhaldsmenntun í geislafræði og/ eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót og lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun
Hæfni til að leiða teymi og vinna að sameiginlegum markmiðum
Sýn og hæfni til að stuðla að faglegri þróun geislameðferðar auk gæða- og öryggismála
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð: Uppbygging, þróun og skipulagning starfseminnar. Setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni. Tekur þátt í vísinda- og rannsóknarstarfi
Starfsmannaábyrgð: Uppbygging mannauðs og dagleg stjórnun starfsfólks deildarinnar
Fjárhagsleg ábyrgð: Stjórnun rekstrarkostnaðar deildarinnar
Forysta: Tekur þátt í áframhaldandi uppbyggingu, skipulagningu og þróun deildarinnar í samráði við forstöðulækni, yfirlækni geislaeðlisfræðideildar og yfirlækni
Gæði og öryggi: Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt og stuðlar að menningu sálræns öryggis
Samstarf: Er virkur þátttakandi í samstarfi stjórnenda hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu Landspítala
Stefna og áherslur: Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala