

Sérfræðilæknir í endurhæfingarlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í endurhæfingarlækningum við endurhæfingardeild Landspítala á Grensási. Til greina kæmi að ráða í starfið sérfræðilækni úr öðrum sérgreinum með reynslu af endurhæfingarlækningum og þá helst taugaendurhæfingu. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs og er starfið laust frá 1. júlí 2026.
Endurhæfingardeild Landspítala Grensás er staðsett við Álmgerði 1 í Reykjavík. Á Grensási er veitt frumendurhæfing eftir erfið veikindi og slys. Megináhersla er á taugaendurhæfingu svo sem endurhæfingu eftir heilablóðföll, heilaskaða og mænuskaða. Á Grensás er rekin bæði sólarhringsdeild og dagdeild. Sérhæfð síspennumeðferð er veitt á göngudeild auk almennrar göngudeildar endurhæfingarlækninga.
Starfsánægja er mikil og starfsmannavelta lítil, þetta er því dýrmætt tækifæri til að kynnast öflugri teymisvinnu í þverfaglegu umhverfi. Síðastliðin ár hefur mikil uppbygging verið í starfseminni, þjálfunarsundlaug verið endurgerð og hannaður meðferðargarður við húsið. Glæsileg viðbygging verður opnuð árið 2027 og verður öll aðstaða þar eins og best verður á kosið.
Íslenska




























