

Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Sjúkraliði óskast til starfa á legudeild geðrofssjúkdóma. Við sækjumst eftir metnaðarfullum sjúkraliða sem hefur áhuga á að starfa með fólki með geðrænar áskoranir, bæði í bráðaveikindum og endurhæfingu. Áhersla er lögð á notendamiðaða þjónustu og góðan starfsanda. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 15. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 rými ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og áhersla er lögð á öfluga fjölskylduvinnu. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm.
Starfið felur í sér að veita líkamlega og andlega umönnun og hjúkrun, hvatningu við athafnir daglegs lífs, ferðir í ýmsa virkni og að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks á deild með þátttöku í varnarteymi geðþjónustu. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfsmannahópnum þar sem leitast er við að nýta þekkingu og færni hvers starfsmanns í deildarstarfið.
Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Boðið er upp á einstaklingsmiðaða aðlögun, stuðning í starfi og starfsþróunarár fyrir sjúkraliða.
Íslenska








































