
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Hlutverk og stefna HSS
Heilsugæslusvið HSS sinnir heilbrigðisþjónustu við heilbrigða og sjúka sem ekki dveljast á sjúkrahúsum, sbr. 19.gr. heilbrigðislaga nr. 97/1990 og heilbrigðisáætlun heilbrigðisráðuneytisins. Heilsugæslan skal tryggja grunnþjónustu í heilsugæslu á starfssvæðinu, s.s. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, vakt- og bráðaþjónustu og forvarnarstarf. Áherslu skal leggja á málaflokka eins og áfengis- og tóbaksvarnir, slysavarnir, geðheilbrigði, hjarta- og heilavernd, næringarráðgjöf, mataræði og krabbameinsvarnir. Þá er rétt að undirstrika mikilvægi þess að efla heimaþjónustu enn frekar og hafa þannig að markmiði að skjólstæðingar, bæði aldraðir og sjúkir, geti dvalið heima hjá sér sem allra lengst.
Stefna HSS er að veita Suðurnesjabúum lögbundna heilsugæslu í heimabyggð, að unnt sé að bóka tíma samdægurs á heilsugæslu ef skjólstæðingur óskar þess og að biðtími á biðstofu eftir bókuðum tíma verði ekki meira en 30 mínútur að jafnaði.
Undir sjúkrahússvið fellur sjúkrahúsþjónusta sem greinist í lyflækningar og endurhæfingaþjónustu annars vegar og skurðlækningar og fæðingarhjálp hins vegar. Sjúkrahúsið er ætlað sjúku fólki til vistunar, þar sem læknishjálp, hjúkrun og allur aðbúnaður er í samræmi við reglugerðir og lög um heilbrigðisþjónustu. Nú er starfrækt hjúkrunardeild í Grindavík í tengslum við sjúkrahúsið og legudeild á 2. hæð í Reykjanesbæ. Á ljósmæðravakt eru fjögur rúm.
Sjúkrahúsið hefur á að skipa sérgreinalæknum bæði í skurðlækningum og lyflækningum. Þá er rekin slysa- og bráðamóttaka í nánum tengslum við heilsugæslusvið.
Stefna HSS er að uppfylla 70-80% af þjónustuþörf íbúa Suðurnesja fyrir sjúkrahúsþjónustu. Sérhæfð og flókin þjónusta verður eftir sem áður sótt til Landspítala háskólasjúkrahúss.
https://hss.is/index.php/um-hss/hss/hlutverk-og-stefna

Hjúkrunardeildarstjóri á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa hjúkrunardeildarstjóra á Hlévang.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.
Hluti af verkefnum deildarstjóra verður að taka þátt í undurbúningi og opnun Hlévangs, þar með talið mótun starfseminnar og stefnu í samvinnu með framkvæmdastjórn HSS.
Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfar í samræmi við ábyrgðarsvið stjórnenda á HSS
- Ber faglega ábyrgð á þjónustu, skipulagi og þróun deildar
- Ber ábyrgð á mannauðsmálum deildar
- Stuðlar að öflugri samvinnu innan og utan deildarinnar
- Ber ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar sé innan heimilda
- Sinnir fræðslu til nemenda og samstarfsfólks
- Ábyrgur fyrir skráningu og innleiðingu klínískra leiðbeininga að starfsemi deildarinnar
- Ábyrgur fyrir að byggja upp öryggismenningu á deildinni
- Skipuleggur og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Stjórnunarreynsla og þekking á mannauðsmálum er kostur
- Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða
- Hæfni til að leiða uppbyggingu, breytingar og umbætur
- Reynsla og þekking af gæðastarfi er kostur
- Samskiptahæfni
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Góð kunnátta í íslensku er skilyrði
- Frumkvæði til verka og metnaður í starfi
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hlévangur 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Starfsfólk í eldhús og býtibúr á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Starfsfólk í umönnun á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Sjúkraliðar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Hjúkrunarfræðingar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur á storkumeinastöð, dagvinna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali

Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali

Sjúkraliði á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Landspítali

Skurðhjúkrunarfræðingar á skurðstofur við Hringbraut
Landspítali