

Sjúkraliðar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa á Hlévangi í Reykjanesbæ.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
-
Almenn sjúkraliðastörf
-
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
-
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
-
Farsæl reynsla af hjúkrun aldraðra er kostur
-
Faglegur metnaður
-
Góð samskiptahæfni
-
Sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Frumkvæði
-
Skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Gott vald á íslensku
Íslenska
Enska














