Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Hjúkrunarfræðingar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa á Hlévangi í Reykjanesbæ.

Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrun og vaktstjórn 
  • Ábyrgð á hjúkrun á deild
  • Skipulagning hjúkrunarmeðferðar
  • Samskipti, hvatning og stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða
  • Faglegur metnaður og leiðtogahæfni
  • Góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í  og frumkvæði í starfi
  • Gott vald á íslensku bæði í mæltu og rituðu máli 
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlévangur Reykjanesbæ
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar