Klettaskóli
Klettaskóli

Klettaskóli-Korpu, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann

Klettaskóli auglýsir starf sjúkraliða laust til umsóknar.

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Skólaárið 2026-2027 verður starfrækt unglingadeild að Barðastöðum 2, 112 Reykjavík. Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar þarfir og nemendur í Klettaskóla. Einstaklingsmiðun er í námi nemenda Klettaskóla, byggt er á forsendum hvers nemanda og styrkleikum þeirra. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".

Við leitum að sjúkraliða til starfa við skólann frá 1. ágúst 2026.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að veita nemendum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu.

Að vinna að gerð umönnunaráætlana í samstarfi við foreldra, umsjónarkennara og hjúkrunarfræðing skólans og fylgja þeim eftir í starfi.

Stuðla að góðum samskiptum og upplýsingaflæði milli hlutaðeigandi aðila (s.s. skóla, heimila og annarra samstarfsaðila).

Að taka þátt í starfi með börnum á skólatíma.

Menntunar- og hæfniskröfur

Starfsleyfi sjúkraliða er nauðsyn

Reynsla af sambærilegu starfi er mikill kostur

Skipulagshæfileikar og hæfni í samskiptum er góður kostur

Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð er æskileg

Mjög góð íslenskukunnátta er æskileg

Góð almenn tölvukunnátta

Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Barðastaðir 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar