

Við leitum að ábyrgu, hlýju og áhugasömu NPA aðstoðarfólki á Selfoss
Við leitum að ábyrgu, hlýju og áhugasömu NPA aðstoðarfólki fyrir 13 ára dreng sem þarf stuðning við athafnir daglegs lífs. Um er að ræða gefandi og mikilvægt starf þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif á líf barns og fjölskyldu þess. Drengurinn er hress og yndislegur, og við leitum að fólki sem vill taka þátt í að skapa öruggt, hlýtt og uppbyggilegt umhverfi bæði daga og nætur.
Erum búsett á Selfossi.
Í starfinu felast góð tækifæri fyrir þá sem meta sveigjanleika og vilja taka þátt í að móta gott starfsumhverfi. Starfið felst í því að aðstoða drenginn við allt sem hann þarf dagsdaglega og finna skemmtilega og áhugaverða hluti fyrir hann að gera, skoða og upplifa.
Við leitum að einstaklingi sem er ábyrgur, traustur og hefur áhuga á að vinna náið með barni og fjölskyldu þess. Íslenskukunnátta er skilyrði, umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust/ur og hafa bílpróf. Reynslu af starfi með fötluðu fólki er kostur, en ekki skilyrði — mikilvægast er að viðkomandi hafi rétt viðhorf, hlýju og vilja til að takast á við fjölbreytt og gefandi starf.
Starfið byggir á NPA hugmyndafræði (notendastýrð persónuleg aðstoð). Nánar má lesa um hugmyndafræðina hér: Hugmyndafræðin - NPA miðstöðin. En þó er hér um að ræða barn sem býr hjá foreldrum sínum og því mikilvægt að umsækjendur skilji og beri virðingu fyrir friðhelgi heimilislífsins.
Við fjölskyldan erum að stíga okkar fyrstu skref á NPA vegferðinni og leitum að fólki sem vill vera með okkur í því mikilvæga verkefni. Hér gefst tækifæri til að taka þátt í að byggja upp kærleiksríkt, traust og jákvætt umhverfi í kringum dásamlegan dreng og leggja sitt af mörkum á merkingarbæran hátt.
Um ráðningu gildir Kjarasamningur NPA miðstöðvarinnar, Eflingar og SGS. NPA miðstöðin er umsýsluaðili NPA samningsins og sér meðal annars um launagreiðslur og ráðningarsamninga. Foreldrar drengsins sjá um starfsviðtöl og hægt er að nálgast nánari upplýsingar um starfið í síma 895-9515.
Hlutastörf eru í boði, með möguleika á dag-, kvöld-, helgar- og síðar einnig næturvöktum. Störf eru laus frá og með 1. júlí.
Íslenska


























