Klettaskóli
Klettaskóli

Klettaskóli-Korpu, Barðastöðum 2, óskar eftir tónmenntakennara í 50% starf

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og eru einkunnarorð skólans "Menntun fyrir lífið". Unglingadeild Klettaskóla flytur á Barðastaði 2, 113 Reykjavík og við leitum að öflugum tónmenntakennara í 50% starfshlutfall til að bætast í fjölbreyttan og lifandi starfsmannahóp skólans.

Við óskum eftir tónmenntakennara í 50% starf frá og með 1. ágúst 2026. Í starfinu felst almenn tónmenntakennsla í bekkjum, auk þess að sjá um/taka þátt í ýmsum viðburðum í skólanum eins og jólaskemmtun, samsöng (kór) o.s.frv.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa í þverfaglegu teymi list- og verkgreinakennara
  • Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
  • Samstarf við samkennara, foreldra og aðra fagaðila
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Lausnarmiðuð hugsun
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta (C1)
Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Barðastaðir 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar