

Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum á Glerártorgi og Blóðbankabílnum Björgu. Við bjóðum velkomin í okkar góða hóp nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem og hjúkrunarfræðinga með reynslu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma. Starfshlutfall er eftir samkomulagi en getur verið frá 66,7% -100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Í Blóðbankanum starfa um 55 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, náttúrfræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofufólk og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið alls starfsfólks að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans. Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
Enska













































