

Læknisfræðilegur eðlisfræðingur á geislameðferðardeild
Geislameðferðardeild Landspítala óskar eftir að ráða læknisfræðilegan eðlisfræðing til starfa í sérhæfðu eðlisfræðiteymi deildarinnar. Við leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og nýtur þess að starfa í teymisvinnu.
Deildin er eina sinnar tegundar á Íslandi og sinnir um 1000 sjúklingum á ári með tveimur Varian TrueBeam línuhröðlum. Til að mæta vaxandi eftirspurn eftir geislameðferð mun deildin þurfa að stækka á næstu árum með uppsetningu fleiri línuhraðla og tengdum búnaði svo viðkomandi mun hafa tækifæri til að taka þátt í spennandi uppbyggingu.
Hlutverk okkar er að veita framúrskarandi klíníska þjónustu í síbreytilegu hátækniumhverfi með öflugu þverfaglegu samstarfi.
Staðan er laus frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% og unnið er að mestu í dagvinnu.
Íslenska
Enska

































