

Iðjuþjálfi í bráðaþjónustu Fossvogi
Aukin áhersla er á iðjuþjálfun í bráðaþjónustu og leitum við því eftir metnaðarfullum iðjuþjálfa sem vill leggja sitt af mörkum við uppbyggingu þjónustunnar.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt nánara samkomulagi og starfið er laust frá 1. ágúst 2026.
Framundan er opnun bráðamatsdeildar sem er skipulögð af breskri fyrirmynd og kallar á aukna þjónustu iðjuþjálfunar. Bráðamatsdeildin verður 20 rúma sólarhringsdeild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga. Markmið deildarinnar er að tryggja hratt og markvisst mat, greiningu og meðferð sjúklinga með samþættri teymisvinnu og skýrum ferlum.
Á bráðadeildum í Fossvogi sinna iðjuþjálfar sjúklingum sem eiga erfitt með athafnir daglegs lífs eftir slys og/eða veikindi. Vinnan felst í mati á færni, þjálfun og ráðgjöf og fer fram á legu- og göngudeildum spítalans fyrir börn sem og fullorðna. Í boði er fjölbreytt og líflegt starf og tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins. Auk þess eru góðir sí- og endurmenntunar möguleikar.
Starfið er dagvinna á virkum dögum en að lokinni aðlögun gefst möguleiki á að vinna einnig á kvöldin og um helgar.
Í iðjuþjálfun á Landspítala er lögð áhersla á fagþróun, kennslu og þverfaglegt samstarf. Vellíðan starfsfólks er í forgrunni og hlúð er að jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmið er að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs, með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika sem nýtist bæði starfsfólki og vinnustaðnum.
Einnig eru í boði samgöngusamningur og önnur starfstengd fríðindi.
Íslenska











































