

Deildarforseti viðskiptadeildar
Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarforseta viðskiptadeildar.
Deildarforseti leiðir akademískt starf og stefnumótun deildarinnar, hefur umsjón með námi innan hennar og situr í framkvæmdastjórn háskólans.
Innan Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst er fjölbreytt námsframboð bæði á grunn- og meistarastigi og má þar nefna viðskiptafræði, markaðsfræði, fjármálastjórnun, mannauðsstjórnun, verkefnastjórnun o.fl.
Við leitum að einstaklingi með faglegan styrk, forystu í rannsóknum, reynslu af skólamálum á háskólastigi og metnað og áhuga á að taka virkan þátt í starfsemi og uppbyggingu öflugs og framsækins háskólastarfs.
Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og hefur verið leiðandi í uppbyggingu fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 25 ár.
- Stjórnun, skipulag og ábyrgð á faglegum störfum á sviði kennslu og rannsókna og inntöku nemenda.
- Leiðir innra starf og þróunarstarf deildar og ber ábyrgð á starfsmannamálum innan deildarinnar.
- Fjárhagsleg ábyrgð innan ramma fjárhagsáætlunar deildar.
- Ábyrgð á og umsjón með gæðastarfi deildar.
- Samstarf við stoðsvið.
- Samskipti við nemendur um akademísk málefni.
- Tekur þátt í nefndarstarfi innan og utan háskólans eftir atvikum.
- Kemur að kennslu og rannsóknum samkvæmt samkomulagi við rektor.
- Hefur eftirlit með rannsóknarvirkni í deildinni í samstarfi með rannsóknarstjóra.
- Doktorspróf tengt fræðasviðum deildarinnar.
- Þekking og reynsla af stjórnun og/eða kennslu á háskólastigi er nauðsynleg.
- Þekking og reynsla úr atvinnulífinu er kostur.
- Haldgóð leiðtoga- og stjórnunarreynsla.
- Skipulags, samskipta- og samráðsfærni.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Enska
Íslenska










