

Aðstoðarskólastjóri Hörðuvallaskóla
Aðstoðarskólastjóri óskast í Hörðuvallaskóla.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs með möguleika á framlengingu.
Í Hörðuvallaskóla eru um 515 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.
Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans. Unnið er eftir læsisstefnu skólans með áherslu á PALS og Byrjendalæsi. Skólinn er í innleiðingarferli að verða réttindaskóli UNICEF.
Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .
Í skólanum er rekin frístund, Hörðuheimar, fyrir nemendur í 1.-4. bekk.
Leitað er að faglegum leiðtoga sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja framsækið skólastarf í samvinnu við aðra stjórnendur, starfsfólk, foreldra og nemendur. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og ber ábyrgð á og stjórnar daglegu starfi skólans.
- Faglegur leiðtogi við framkvæmd skólastarfs og við innleiðingu á nýbreytni og/eða þróunarverkefnum.
- Ber, ásamt skólastjóra, ábyrgð á skólastarfinu, daglegri stjórnun þess og rekstri skólans.
- Hefur umsjón með að unnið sé samkvæmt lögum, reglugerðum, aðalnámskrá grunnskóla og í samræmi við menntastefnu Kópavogsbæjar.
- Vinnur að stefnumótun og áætlanagerð í samráði við skólastjóra.
- Heldur utanum skólanámskrárvinnu, stundatöflugerð, starfsáætlun og innra mat skólans.
- Tekur þátt í stjórnun mannauðsmála með skólastjóra, sinnir ráðningum og styður við starfsþróun starfsfólks.
- Stuðlar að velferð og farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila innan og utan skólans í anda laga og verklags um farsæld barna.
- Ber ábyrgð á móttöku á nýju starfsfólki og faglegri leiðsögn.
- Stuðlar að góðu samstarfi í skólasamfélaginu, við foreldra, skólayfirvöld og nærsamfélagið.
- Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði.
- Framhaldsmenntun (MA, M.Ed, MS, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar, kennslufræði, uppeldis- og menntunarfræða eða sambærilegra greina er skilyrði.
- Reynsla af stjórnun, faglegri forystu og teymisvinnu á sviði kennslu og þróunar í grunnskólastarfi er skilyrði.
- Þekking og reynsla af innra mati er kostur.
- Þekking og reynsla af teymiskennslu, leiðsagnarnámi, læsi og þematengdu þverfaglegu námi.
- Lausnamiðað hugarfar og farsæl reynsla af úrlausn nemendamála og foreldrasamskiptum.
- Hefur góða þekkingu og reynslu af móttöku á nýju starfsfólki og faglegri leiðsögn.
- Þekking á rekstri og fjármálum kostur.
- Góð þekking á upplýsingatækni og notkunar rafrænna miðla í skólastarfi.
- Metnaður í starfi, sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun.
- Leiðtogahæfileikar, samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Íslenska
Enska










