
Laus staða skólastjóra við Súðavíkurskóla
Súðavíkurskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með einum stjórnanda, áætlað að það verði u.þ.b. 30 nemendur, þar sem unnið er eftir Uppbyggingarstefnunni og starfið hverfist um einkunnarorðin: Vellíðan – Virðing – Framfarir – Heiðarleiki. Þá er lögð áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Við grunnskólann næsta vetur verður einungis 1.-7. bekkur.
Umsókn skal skilað til Önnu Lindar Ragnarsdóttur skólastjóra, á netfangið [email protected] og með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til 19. júní 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri í síma 450 5911 og gsm 893 4985 eða í gegnum netfangið [email protected] og eða [email protected]
Stjórnun leik-grunn- og tónlistarskóla skv. aðalnámskrám þessa skólagerða
Helstu hæfniskröfur eru kennsluréttindi í tónlistar-, grunn- og leikskóla og reynsla af kennslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og samviskusemi. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. Kostur er að þekkja byrjendalæsi og leiðsagnarnám.
Íslenska

